Sameyki Þrósí Mínar síður

Atvinnurekendur sem greiða í Þróunar- og símenntunarsjóð eru:

  • Ás styrktarfélag
  • Fríhöfn
  • Isavia
  • Klettabær
  • Matís
  • Rarik
  • Ríkisstofnanir
  • Ráðuneyti fyrir starfsfólk í FSS
  • SÁÁ
  • SFV - Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
  • sjálfseignastofnanir
  • Skálatún
  • Vinakot

Allar umsóknir skulu sendar rafrænt í gegnum Mínar síður Þrósí. Fylla þarf út áætlað uppgjör þar sem fram koma kostnaðarliðir tengdir verkefninu. Ef verkefni hefur farið í útboð getur það flýtt fyrir afgreiðslu umsóknar að láta tilboð fylgja með umsókn.
Að verkefni loknu skal senda til sjóðsins reikninga ásamt uppfærðu uppgjörseyðublaði, þetta er hægt að hengja á umsókn undir Mínar umsóknir.

Stjórn Þróunar- og símenntunarsjóðs Sameykis áskilur sér rétt, skv. vaxtalögum nr. 25/1987, til að krefjast endurgreiðslu með vöxtum á styrk sem hefur verið varið til annarra verkefna en þeirra sem hann upphaflega var veittur til og ef verkefni hefur ekki verið hrundið í framkvæmd innan 12 mánaða frá úthlutun.

Styrkir eru greiddir þegar stjórn Þróunar- og símenntunarsjóðs hefur samþykkt umsóknina.

Markmið Þróunar- og símenntunarsjóðs er að auka möguleika stofnana á að þróa starfssvið með því að styðja við markvissa starfsþróun starfsfólks sem er í Sameyki með það fyrir augum að það sé færara til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði símenntunar sem eru í samræmi við markmið hans. Stjórn sjóðsins er skipuð annars vegar af stjórn Sameykis og hins vegar af fjármálaráðherra.

F.h. Sameykis: 

Þórarinn Eyfjörð frá Sameyki og Berglind Margrét Njálsdóttir frá Skattinum

F.h. ríkissjóðs: 

Einar Mar Þórðarson og Ásta Einarsdóttir frá Kjara og mannauðssýslu ríkisins

1. Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að auka möguleika stofnana og vinnustaða á að þróa starfssvið sitt með því að styðja við markvissa starfsþróun. Sjóðurinn leggur áherslu á að starfsfólk hafi tækifæri til að auka og nýta þekkingu sína í starfi, ásamt því að þróa færni sína og viðhalda verðgildi sínu á vinnumarkaði. Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu meðal annars með því að veita styrki til fræðsluverkefna sem tengjast markvissri starfsþróun og þróun mannauðs.

2. Réttur til að sækja um styrki
Rétt til að sækja um styrki hafa stofnanir, ráðuneyti og aðrir launagreiðendur sem greiða iðgjöld til sjóðsins vegna félagsfólks Sameykis og Félags starfsmanna stjórnarráðsins sem þar starfa. Einnig eiga samningsaðilar sem standa að sjóðnum rétt á að sækja um styrki, sem og Fræðslusetrið Starfsmennt.

3. Styrkhæfi verkefna
Verkefni þurfa að falla að markmiðum stofnunar í starfsþróunarmálum og taka til starfsfólks sem iðgjöld eru greidd fyrir til Þróunar- og símenntunarsjóðs, ásamt því að vera í samræmi við markmið í samþykktum sjóðsins.

Þróunar- og símenntunarsjóður styrkir eftirfarandi:

  • Verkefni sem snúa að þróun mannauðs og leiða af sér nýsköpun, framþróun og/eða breytt verklag.
  • Styrkir eru veittir til að setja upp skilgreint verklag í mannauðsmálum t.d. eftirfarandi:
    • Mannauðsstefna
    • Mannaflagreining og mannaflaspá
    • Starfsgreining, hæfni og starfslýsing
    • Starfsmannasamtal og mat á frammistöðu
    • Starfsþróun, gerð starfsþróunaráætlana
    • Mannauðsmælikvarðar
    • Teymisvinna
  • Námskeiðahald / Almenn námskeið

4. Hvað er styrkt - kostnaðarliðir
Styrkir eru veittir vegna eftirtalinna kostnaðarþátta:

  • Kostnaður vegna leiðbeinanda/námskeiðshaldara/ráðgjafa
  • Salarleiga og tækniaðstoð
  • Námsgögn
  • Gjöld vegna sérhæfðra ráðstefna og námskeiða fyrir starfsfólk stofnunar
  • Fræðsluferðir starfseininga:
    • Starfseiningar stofnana (deildir/svið) geta sótt um styrki vegna skipulagðra fræðsluferða sem tengjast fagsviði eða starfi þeirra. Á þetta við um fræðsluferðir innanlands sem utan. Rökstyðja þarf staðarval náms.
    • Dagskrá vegna fræðsluferðar innanlands þarf að spanna að lágmarki 6 klst. í fræðslu. Dagskrá erlendis þarf að skiptast á a.m.k. tvo daga og þarf hún að spanna að lágmarki 8 klst. í fræðslu. Stjórnandi viðkomandi starfseiningar skal tilgreina markmið ferðarinnar og hvernig hún nýtist til frekari þróunar starfseiningarinnar. Ítarleg dagskrá ferðar þarf að fylgja með ásamt heildarfjölda þátttakenda í ferð og nafnalista þeirra sem heyra undir sjóðinn.

5. Umsókn
Umsóknum skal skilað til Þróunar- og símenntunarsjóðs með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður sjóðsins. Þar skal m.a. koma fram lýsing á því fræðsluverkefni sem sótt er um fyrir, skipulag þess, efnisinntak, áætluð framkvæmd, kostnaðaráætlun og hvort um sé að ræða aðra styrki og eða framlag frá umsækjanda. Hægt er sækja um eftir að verkefni er lokið en almenna viðmiðið er að ekki er greitt vegna reikninga sem eru eldri en 12 mánaða.

6. Styrkupphæð
Stjórn ákvarðar hvaða fjármagni verður veitt í styrki í samræmi við áherslur stjórnar hverju sinni. Úthlutun úr sjóðnum fer fram ársfjórðungslega eða oftar eftir því sem þörf krefur.

Samþykkt á fundi stjórnar sjóðsins 27. október 2022.

1. gr.
Nafn sjóðsins
Sjóðurinn heitir Þróunar- og símenntunarsjóður Sameykis. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík. Sjóðurinn starfar á grundvelli kjarasamnings Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs skv. gr. 10.3.1.2 í kjarasamningi aðila. Sjóðurinn starfar með því skipulagi og markmiði sem segir í þessum reglum.

2. gr.
Stefna og hlutverk
Markmið sjóðsins er að auka möguleika stofnana og vinnustaða á að þróa starfssvið sitt með því að styðja við markvissa starfsþróun. Sjóðurinn leggur áherslu á að starfsfólk hafi tækifæri til að auka og nýta þekkingu sína í starfi, ásamt því að þróa færni sína og viðhalda verðgildi sínu á vinnumarkaði.
Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu meðal annars með því að veita styrki til fræðsluverkefna sem tengjast markvissri starfsþróun og þróun mannauðs.

3. gr.
Réttindi til styrkumsókna
Rétt til að sækja um styrki til sjóðsins hafa launagreiðendur sem greiða í sjóðinn, samningsaðilar og Fræðslusetrið Starfsmennt.
Umsóknir skulu sendar stjórn sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því fræðsluverkefni sem sótt er um styrk til, skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda.

4. gr.
Fjármál og tekjur
Tekjur Þróunar- og símenntunarsjóðsins eru:

  • Mánaðarlegt iðgjald launagreiðanda sem svarar 0,5% af heildarlaunum vegna hlutaðeigandi starfsmanna.
  • Fjármagnstekjur

Framlag launagreiðanda skal greitt fyrir 10. hvers mánaðar inn á reikning sjóðsins í þeirri fjármálastofnun sem stjórn sjóðsins ákveður.

Fjármunir sjóðsins verða ávaxtaðir á þann hátt sem sjóðstjórn telur hagkvæmast á hverjum tíma. Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við aðra aðila um að sjá um daglega umsýslu hans þar á meðal bókhald.

5. gr.
Reikningar
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda sem stjórn sjóðsins fær til verksins. Ársreikningur sjóðsins skal sendur til Ríkisendurskoðunar.

6. gr.
Skipan, hlutverk og starfshættir stjórnar
Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum fulltrúum, tveimur skipuðum af fjármálaráðherra og tveimur af Sameyki. Stjórnin kýs sér formann og varaformann.
Hlutverk stjórnar Þróunar- og símenntunarsjóðs Sameykis er að móta og þróa starfsemi sjóðsins í samræmi við markmið hans. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum sjóðsins og setur sér nánari úthlutunarreglur. Stjórnin fundar reglulega og skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar.

Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.

Stjórnin skal árlega gera skýrslu um störf sín.

7. gr.
Samstarf við aðra aðila
Þróunar- og símenntunarsjóður getur átt samstarf við aðra aðila samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og gert við þá samninga til lengri eða skemmri tíma til að vinna að markmiðum og verkefnum sjóðsins.

8. gr.
Breytingar á samþykktum
Breytingar á reglum þessum skulu hljóta samþykki fjármála- og efnahagsráðherra og stjórnar Sameykis.


Samþykktar og undirritaðar af fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Sameyki 27. október 2022.